Rómantíserum kvöldið þar sem þú pakkar inn gjöfunum í ár : Þú hellir kampavíni í glas, dregur fram fallegan jólapappír, kveikir á ljúfum jólatónum og hátíðarkertinu frá URÐ.
Mildur ilmur af furu, fíkjuvið, karamellu, santalvið, kanil, davana, sedrusvið, rifsberjum og patsjúlí fyllir herbergið.
Jólakertið frá URÐ fangar minningar jólanna með sannkallaðri jólaveislu fyrir lyktarskynið.
Brennslutími er 40-45 klst.
Mælt er með að hafa kveikinn ekki lengri en 0,5 cm til að koma í veg fyrir að kertin sóti. Með því að brenna kertið ekki lengur en í tvo tíma viðhelst ilmurinn af kertinu lengur.
