Leigupakkar

Skapaðu ævintýraleg-móment

án þess að eyða löngum stundum í undirbúning!

Leigupakkarnir okkar eru hannaðir til að gera lífið einfaldara fyrir foreldra og skapa algjörlega ógleymanlega upplifun fyrir börnin. Við sköpum hvert og eitt þema með því að velja fallega, hentuga og barnvæna hluti af mikilli kostagæfni. Pakkarnir innihalda því allir fallegt skraut, búninga og skemmtilega leiki sem halda fjörinu gangandi. Leigupökkunum fylgir að auki minni sóun og ekkert stress.

Við viljum tryggja að foreldrar jafnt sem börn njóti dagsins. Þú átt ekki að þurfa að að standa vaktina mörg kvöld fyrir afmælið, keyra milli verslana og taka svo allan daginn í að setja upp veisluna.
Þú sækir, setur upp og skilar – einfaldara verður það ekki.

Til að einfalda foreldrum lífið enn frekar höfum við farið í samstarf við 17 Sortir sem bjóða uppá fallegar, gómsætar kökur og krakkabakka sem eru fullkomin viðbót við leigupakkana okkar. Að skapa einstakt barnaafmæli hefur aldrei verið fljótlegra!

Með okkur skapar þú móment sem lifa lengur en dagurinn sjálfur 💛

Afhverju að leigja?

- Sparar tíma
Ekkert stress, bara setja upp og njóta mómentsins
- Hagkvæm lausn
Með því að leigja sparar þú þér töluverðan pening mv. Kostnaðarverð
- Umhverfisvænn kostur
Veislan þarf ekki að enda með sorpuferð eða með fullri geymslu af dóti sem verður aldrei notað aftur
- Skapar upplifun, ekki bara veislu
Leikir, þema og smáatriði sem gera daginn ógleymanlegan
- Minna álag á foreldra
Óþarfi að taka kvöldvakt á þriðju vaktinni - sendir einn tölvupóst og afmælið er klárt

ATH. Við bjóðum einnig uppá “Partý-pakka” en í þeim færðu diska, glös, servíettur og blöðrur á betra verði.
Lífið verður auðveldara og veislan enn flottari!

Frágangur og skil

Viðskiptavinur ber ábyrgð á vörum frá afhendingu og þar til þeim hefur verið skilað.

Öllum pökkum fylgir tékklisti og túss þar sem allar vörur pakkans eru listaðar upp og innihaldið því bæði skýrt og aðgengilegt.

Vinsamlegast skilið kössunum vel frágengnum með öllum vörum sem fylgja leigupakkanum.
Skálar, löberar, búningar og annað sem þarfnast þirfa skal sett í fjölnota pokann sem fylgir með áður en það er sett í kassann. Vinsamlegast skiljið ekki eftir matarleyfar eða mat í skálum og diskum.

Fyrirtækið áskilur sér rétt til að rukka þrifa og/eða frágangsgjald. Það er reiknað eftir atvikum.

Allar pantanir og breytingar á leigupökkum fara fram í gegnum tölvupóst á
 momenta@momenta.is
eða með því að fylla út formið hér fyrir neðan.

Vinsamlegast sendið eftirfarandi upplýsingar með pöntun:
- Nafn forráðamanns :
- Símanúmer :
- Þema :
- Dagsetningu leigu :
- Nafn og aldur afmælisbarns :
- Kaka frá 17 Sortum : Já/Nei
- Krakkabakki frá 17 Sortum : Já/Nei

Þeir sem vilja panta köku frá 17 Sortum skulu einnig taka fram hversu stóra köku þeir vilja
- fyrir 15 eða 25 manns.
Allar kökupantanir skulu berast amk 2 dögum fyrir áætlaða afhendingu.



Leiga telst staðfest þegar staðfestingargjald hefur verið greitt.

Staðfestingargjald er 5000 kr.
Ath. Staðfestingargjald er síðan notað sem tryggingargjald. Tryggingargjald er endurgreitt þrem dögum eftir skil ef ástand á leiguvörum stenst kröfur leiguskilmála.

Greiða þarf fyrir leigu að fullu amk. 24 tímum fyrir afhendingu.

Leigutími er 72 klukkustundir.
Dæmi: Afhending kl. 15:00 á föstudegi – skil fyrir kl. 15:00 á mánudegi.

Nánari upplýsingar má finna í leiguskilmálum.

Þú getur pantað hér!