Leiguskilmálar
Leiguskilmálar
Þú getur leigt vörur með því að hafa samband við momenta@momenta.is, í gegnum einkaskilaboð á facebook eða instagram - við hlökkum til að heyra frá þér, saman getum við búið til ógleymanleg móment.
Með því að leigja vörur hjá Momenta ehf. samþykkir viðskiptavinur eftirfarandi skilmála:
1. Leigutími
- Leiguvörur eru að jafnaði afhentar eftir kl.15:00 á föstudegi og þeim skal skilað ekki síðar en 15:00 á mánudegi nema um annað hafi verið samið.
- Vörur eru sóttar og þeim skilað samkvæmt samkomulagi við fyrirtækið.
- Skil á vörum skulu fara fram á eða fyrir umsaminn skiladag.
- Vörur verða ekki afhentar fyrr en að greiðsla er móttekin.
2. Afhending og skil
- Viðskiptavinur ber ábyrgð á vörum frá afhendingu og þar til þeim hefur verið skilað.
-
Vinsamlegast skilið kössunum vel frágengnum með öllum vörum sem fylgja leigupakkanum.
-
Skálar, löberar, búningar og annað sem þarfnast þirfa skal sett í fjölnota pokann sem fylgir með áður en það er sett í kassann. Vinsamlegast skiljið ekki eftir matarleyfar eða mat í skálum og diskum.
- Fyrirtækið áskilur sér rétt til að rukka þrifa og/eða frágangsgjald. Það er reiknað eftir atvikum.
3. Ábyrgð og tjón
- Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á tjóni, broti, glötun eða þjófnaði á leigðum vörum.
- Sé vara skemmd eða glötuð skal greiða:
- viðgerðarkostnað, eða
- fullt endurnýjunarverð, ef viðgerð er ekki möguleg.
- Eðlilegt slit telst ekki tjón, en rispur, blettir, brot eða beyglur teljast ekki sem eðlilegt slit.
4. Seinkun á skilum
- Ef vörum er skilað eftir umsaminn skiladag áskilur fyrirtækið sér rétt til að rukka:
- Daggjald fyrir hvern dag í seinkun eða fullt leigugjald aftur, eftir atvikum.
- Seinkun getur haft áhrif á aðra viðskiptavini og öllum seinkunum því tekið alvarlega.
5. Notkun vara
- Leigðar vörur eru eingöngu ætlaðar til eðlilegrar notkunar í veislum og viðburðum.
- Ekki má breyta, mála, líma, saga eða gera varanlegar breytingar á vörunum.
- Leigðar vörur eiga ekki að vera notaðar utandyra nema það sé sérstaklega tekið fram.
6. Viltu hætta við?
- Ef upp kemur að viðskiptavinur þarf að hætta við leigu skal það tilkynnt amk. 7 dögum fyrir afhendingu og fær hann þá fulla endurgreiðslu.
- Ef viðskiptavinur hættir við 4-6 dögum fyrir afhendingu getur hann fengið 50% af staðfestingargjaldi endurgreitt.
- Ef viðskiptavinur hættir við innan við 72 tímum fyrir áætlaðan afhendingartíma getum við ekki endurgreitt staðfestingargjald.
- Afpantanir skulu berast skriflega í tölvupósti á momenta@momenta.is.
- Allar breytingar á pöntunum þurfa að vera skriflegar, séu breytingar gerðar í síma er breytingin ekki talin staðfest nema að viðskiptavinurinn hafi sent okkur tölvupóst á momenta@momenta.is með umbeðnum breytingum.
7. Ábyrgð fyrirtækis
- Fyrirtækið ber ekki ábyrgð á slysum, meiðslum eða tjóni sem kann að verða í tengslum við notkun á leigðum vörum.
- Viðskiptavinur ber ábyrgð á að tryggja að allar leigðar vörur séu notaðar á öruggan hátt, sérstaklega þar sem börn eru viðstödd.
8. Samþykki skilmála
- Þegar viðskiptavinur greiðir staðfestingargjald leigu samþykkir hann um leið ofangreinda skilmála í heild sinni.
- Komi upp ófyrirséð atvik sem veldur því að pöntuð vara er ekki tiltæk, áskilur fyrirtækið sér rétt til að útvega sambærilega vöru eða endurgreiða viðkomandi leigulið.