Katie Leamon

Katie Leamon er vandað og fallegt merki sem við hlökkum til að kynna betur fyrir ykkur!
Merkið sækir innblástur í hlýjuna og ánægjuna sem fylgir því að fá handskrifað bréf. Vörurnar hennar Katie eru allar hannaðar og framleiddar af mikilli kostgæfni í Bretlandi.

Við seljum bæði tækifæriskort og gjafapappír frá Katie Leamon.

Skoða meira

MÓMENTA er skapandi upplifunardrifið concept sem sameinar viðburðastjórnun og vandað vöruúrval. Við vinnum af ástríðu, fagmennsku og nákvæmni til að tryggja að hvert smáatriði sé bæði útpælt og einstakt. Okkar helst markmið að skapa ógleymanleg móment sem þú getur notið.

Það er enginn tími meira töfrandi eða eins fullur af fallegum mómentum og jólin.
Okkur þótti því ekkert meira viðeigandi en að hefja þessa vegferð okkar með lítilli jólaverslun. Njóttu!