{"title":"BOLLE - óáfengt vín","description":null,"products":[{"product_id":"freydivin-bolle-blanc-de-blancs-750ml30","title":"Freyðivín - BOLLE - Blanc de blancs - 750ml","description":"\u003ch3\u003eÓáfengt freyðivín sem fékk 91 stig hjá Wine Enthusiast. Lifandi sítrustónar, steinefni og hunang. Tvígerjað úr Chardonnay og Silvaner.\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eBOLLE Blanc de Blancs er óáfengt freyðivín úr Chardonnay og Silvaner. Wine Enthusiast gaf því 91 stig. Eins og önnur BOLLE-vín er það tvígerjað: gerjað aftur eftir að áfengi er tekið úr því, svo karakterinn haldist.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ nefi eru sítróna, greipaldin og límóna á grunni af steinefnum og hunangi. Á tungu opnast vínið með suðrænum tónum af mangó og grænu epli, ásamt ristuðum brauðkeim og vott af sedrusviði og múskati. Miðlungsþurrt með ferskri sýru, létt til meðalfyllt og með löngu eftirbragði. Gyllt og tært í glasi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBlanc de Blancs stendur fyrir sínu við hlið hefðbundinna freyðivína — í skálinni um áramót, með forréttum eða sem fordrykkur sem allir við borðið geta notið.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eBragðpalletta:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eÞrúgur:\u003cstrong\u003e \u003c\/strong\u003eChardonnay og Silvaner\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÚtlit: Gyllt og tært, lifandi loftbólur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003elmur:Sítróna, greipaldin, límóna, steinefnakeimur og hunang\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eBragð: Miðlungsþurrt með ferskri sýru; mangó, grænt epli og ristaður brauðkeimur, vottur af sedrusviði og múskati\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFylling:\u003cstrong\u003e \u003c\/strong\u003eLétt til meðalfyllt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEftirbragð: Langt\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFramreiðsluhiti: 6–8°C\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003ePörun:\u003cstrong\u003e \u003c\/strong\u003eFordrykkur, forréttir, skálin við hátíðleg tilefni\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eUppruni: La Mancha, Spánn\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁfengi: \u0026lt;0,5%\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e750 ml flaskan hentar við borðhald.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eFrábær viðbót í leynivinagjöfina, í barnasturtuna, ferminguna, jólaboðið eða í matarboðið! Toppaðu hvaða móment sem er með þessu einstaka \u003cstrong\u003eóáfenga \u003c\/strong\u003efreyðivíni.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Mómenta","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53245314793754,"sku":null,"price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0951\/2652\/0090\/files\/IMG_9052.jpg?v=1793214044"},{"product_id":"freydivin-bolle-sparkling-rose-750ml","title":"Freyðivín - BOLLE - Sparkling Rosé - 750ml","description":"\u003ch3\u003e93 stig hjá Wine Enthusiast og sæti á listanum „Top 40 Sparkling Wine in the World 2026“. Tvígerjað freyðivín með keim af jarðarberjum, sólberjum og fjólum.\u003c\/h3\u003e\n\u003cp\u003eEins og öll BOLLE-vín er Sparkling Rosé gerjað aftur eftir að áfengið hefur verið fjarlægt. Wine Enthusiast gaf því 93 stig og setti það á listann „Top 40 Sparkling Wine in the World 2026“.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVínið er unnið úr Chardonnay og Pinot Noir. Í nefi finnast hvít jarðarber, rauð ber, sólber og fjóla með fíngerðum jurtatónum. Bragðið er þurrt og ferskt, með sumarávöxtum, steinefnakeim og langt, lifandi eftirbragð. Ljósbleikt og tært í glasi, með fínum, þéttum loftbólum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHentar sem fordrykkur og með sjávarréttum eða öðrum léttum réttum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eBragðpalletta:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eÞrúgur: Chardonnay og Pinot Noir\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÚtlit: Ljósbleikt og tært, fínar og þéttar loftbólur\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eIlmur: Hvít jarðarber, rauð ber, sólber og fjóla; fíngerðir jurtatónar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eBragð: Þurrt og ferskt, með sumarávöxtum og steinefnakeim\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEftirbragð: Langt og lifandi\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFramreiðsluhiti: 6–8°C, í flautu- eða hvítvínsglasi\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003ePörun: Fordrykkur, sjávarréttir, léttir sumarréttir\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eUppruni: La Mancha, Spánn\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁfengi: \u0026lt;0,5%\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e750 ml flaskan hentar við borðhald. 375 ml flaskan nægir í tvö glös.\u003c\/p\u003e","brand":"Mómenta","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53265340989722,"sku":null,"price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0951\/2652\/0090\/files\/IMG_9053.jpg?v=1793363012"}],"url":"https:\/\/momenta.is\/collections\/bolle-oafengt-vin.oembed","provider":"Mómenta","version":"1.0","type":"link"}